Archive for April 24th, 2008

bozar_dates.png     We are are heading out to Belgium for a Massive one day festival at Bozar Art Centre. Make shure that you can be there on the 30th of April. EDGY EVENING of BAD TASTE The art scene in Iceland is notorious for a diversity and eclecticism that has led many to think that all Icelanders are mad. Judge for yourself at the EDGY EVENING of BAD TASTE where musicians, poets and artists from every nook and cranny of Iceland will be at their most kooky and uncanny. Collaborations of unexpected proportions will ensue followed by a DJ-set until dawn or until everyone is dead, whichever comes first. Icelandic artists strongly dislike being pigeonholed, so here is a cursory glance at what each one of them does. And the artists performing:

Ásdís Sif

Byrkir

DJ Magic

Ghostigital

Eiríkur Örn Norðdahl

Finnbogi Pétursson

Helmus und Dalli

Hrafnkell Sigurðsson

Ingibjörg Magnadóttir

Lay Low

kimono

Kristín Svava Tómasdóttir

Radium

Ragnar Kjartansson

Retrön

riceboy sleeps

Sjón

Steintryggur

Stilluppsteypa

Technowitch

Örvar Þóreyjarson Smárason

We have done a small myspace!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,

Comments No Comments »

We have just started the blog for the site. We will be updating it with news and tidbits which we think are interesting to us and you.

What a day! To have the blog!  :)

Comments No Comments »

Trappa heitir nýjasta afurð Steintryggs flokksins en hann skipa þeir bank bræður Sigtryggur Baldursson og Steingrímur Guðmundsson.  Hafa þeir unnið að grip þessum í fjögur ár með hléum, safnað hinum ymsustu framlögum framandi hljóðfæraleikara og söngvara og síðan fullunnið verkið með Galdramanninum frá Ástraliu, Ben Frost.

Fyrir utan þá Steingrím og Sigtrygg sem hafa leikið á slagverkshljóðfæri hverskonar og ýmis önnu hljóðfæri, auk forritunar,  koma einnig við sögu margir góðir gestir sem ljáðu leikni sína með hljóðfæraslætti og söng.  Má meðal annarra nefna barkasönghópinn Huun Huur Tu sem heilluðu landsmenn uppúr skónum árið 2005 á listahátið og Tyrkneska strengja og flautu snillingin Hadji Tekbilek, að ógleymdum hinum danska-hollenska Sören Venema sem leikur á gítar og ymiskonar framandleg strengjahljóðfæri. Hinn aldanski Lars Bo Kujahn leikur á flathörpu sem ættuð er frá egyptalandi og heitir Quanoon (kanún) og setur mikinn svip á fyrsta lag disksins, Melur.

Fleiri góðir gestir koma við sögu og af íslendingum má nefna  kammerkór suðurlands og saxafón stórmeistarann Jóel Pálsson sem brýtur blað í og leikur á kontrabassa klarinett.
Frá bretlandseyjum koma við sögu gítarleikari bresku sveitarinnar Faithless, Dave Randall og ekki síður gamall munnhörpuleikari frá Wales, David Jones, sem þeir Steintrygg félagar og Ben Frost fundu uppí fjöllum Wales.  Má með sanni segja að þarna leiki lausum hala mikill samvinnupúki og spilagleði sem einkennt hefur verk þessarar sérstæðu sveitar sem er ein af fáum íslenskum sem sækir innblástur beint í fjölbreytileika framandi hljóðheima og menningarkima.

Í tónleikasveit Steintryggs leika nú þeir Sigtryggur og Steingrímur, Ben Frost og Kippi Kanínus sem leikur á Kjálkahörpu og syngur yfirtónasöng sem er söngtækni sem ættuð er frá mongólíu.  Hyggja þeir á tónleikaferð um landið um miðjan mai. Nánari upplýsingar síðar.

Má benda fólki á www.myspace.com/steintryggur

Tags: ,

Comments No Comments »

 Sólarsamba    

Það hefur löngum þótt til siðs að halda upp á komu sumarsins á Íslandi. Samkvæmt íslensku almanaki gengur sumarið í garð á miðnætti þann 24. apríl og gefur þessi dagsetning ærið tækifæri til fagnaðarfunda. Því hafa tímaritið Reykjavík Grapevine og tónlistarbúllan Organ, í sólarsamstarfi við útvarp allra landsmanna, Rás 2, og Thule, kallað til sumarglaðnings á Organ þann 23. apríl.  Fram koma sveitirnar Seabear, Skátar, kimono og Swords of Chaos auk þess sem sérstakir heiðursgestir verða Magnús Kjartansson og Magga Gauja og flytja gestum lagið Sólarsamba. Lagið á 20 ára afmæli núna í vor og því tilvalið að dusta rykið af þessum þemasöng íslenska sumarsins og kynna það vonandi fyrir nýjum kynslóðum. Lag þetta var sem límt við heila landsmanna þegar það braust fram á sjónarsviðið árið 1988 og má nefna að það var í texta þessa lag sem nýyrðið “bongóblíða”skaut fyrst upp kollinum. Í dag er ekki útskrifaður veðurfræðingur á Íslandi án þess að hann hafi tamið sér notkun þessa orðs. 

 

Hljómsveitin Seabear hefur aldeilis sótt í sig veðrið síðustu misseri og hugljúft indie-pop Sindra Más og félaga fallið í kramið hjá löndum okkar sem og öðrum þjóðum, enda hefur Seabear ferðast grimmt um heiminn og öðlast fjölda aðdáenda hvar sem sveitin hefur sett niður fótinn. Til gamans má geta að Seabear kom fyrst fram á tónleikum með kimono í Þjóðleikhúskjallaranum 2. febrúar 2006 en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrsta eiginlega breiðskífa Seabear kom út hjá hinni virtu útgáfu Morr Music í fyrra.     

Skáta þarf vart að kynna fyrir fjöldanum. Plata þeirra, “Ghost of the Bollocks to come” deildi 1. sæti árslista Reykjavik Grapevine fyrir 2007 með I Adapt plötunni “Chainlike Burden” og eru því vel að því komnir að spila á sumarhátíð sama tímarits. Tónlist þeirra er með því líflegra sem sjá má á sviði og sjá má fólk með galopna munna, furðu lostið þegar þeir framkalla súrann en stórskemmtilegann bræðing rokks eins og það hefur aldrei áður verið framreitt. Skátar leggja nú drög að þremur sjötommu og stafrænum smáskífum sem munu líta dagsins ljós á árinu. 

kimono er sennilega elst þeirra sveita sem kemur fram á tónleikunum, tæpra átta ára og hafa skilið eftir sig þrjár plötur (Mineur Aggressif 2003, Arctic Death Ship 2005 og Curver+kimono 2007). Sveitin hefur lítið á sér bera undanfarin misseri en þessir tónleikar marka breytingu þar á. kimono hafa setið sveittir við lagasmíðar og upptökur og hafa lofað því að tónleikaprógrammið í heild sinni verið samsett nýjum lögum.  Því verður ekki lengi að bíða að fjórða skífa þeirra líti dagsins ljós. Heldur sveitin svo í víking til Belgíu nokkrum dögum eftir tónleikana þar sem tekinn verður mini-tour fernra tónleika. 

Swords of Chaos er hópur fólks sem strokið hafa hljóðfærunum sínum saman frá því veturinn 2006. Hópurinn hefur áður komið fram í frumstæðara einstaklings formi í hljómsveitum á borð við Somniferum, The Ministry of Foreign Affairs, Big Kahuna, Gone Postal og Klive, s.s. allt frá síðrokki til svarta málms. Fullir af eðlisfræðilegum áhrifum um endalok heimsins, mikla hvell og hugsanlega vitneskju um alheim útbúin aðeins úr andefnum sjálfs síns koma Swords of Chaos fullir sjálfstrausts sem ferskur blær inn í tónlistargrýtu landsins. En þar sem framtíðin er glundroði og allt fyrir handan hana er frelsið sjálft spilar hljómsveitin blöndu af hávaðarokki í bland við harðkjarna og svarta málms áhrif, í anda hljómsveita eins og Fugazi, The Fucking Champs, Defeated Sanity, Death og Immolation. Framtíð framtíðarinnar er björt. Dómsdagurinn er í höndum Swords of Chaos.

DJ Bobby Breiðholt er einstaklega skemmtilegur DJ og Bloggari:

http://breidholt.blogspot.com/
http://www.balladofbob.blogspot.com/

Á dagskránni hans er m.a. soft rock, indie, italo disco, leftfield 80’s og fleira geggjað shit!
Við vonum að sem flestir mæti og fagni sumrinu með rjóma íslenskrar tónlistar síðari daga og fyrri.

 

 

 

 

 

Hlekkir:

The Reykjavik Grapevine
Skátar
kimono
Seabear
Swords Of Chaos

Organ

Organ, Hafnarstræti 1-3 (bakhús)
Miðvikudaginn 23. apríl (Síðasta Vetrardag)
Frá 22:00 - 05:00
1000 krónu aðgangseyrir
20 ára aldurstakmark

Tags: , ,

Comments No Comments »

Our online shop has nearly all of our catalogue plus many more titles. Some of our titles are also availble as CD release with the option of downloading the album while it arrives in the post. How instant is that!

Our shop is at http://www.smekkleysa.net so browse over and shop till you drop!

We had a shop on Laugavegur, but we have closed it down for the time being, but our records are available from here, and also from all good record shops in Reykjavik as we continue to distribute our music in Iceland and abroad.

 

 

Tags: ,

Comments No Comments »

Smekkleysa SM / BadTaste SM is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!