Við vorum fá fullt af frábærum nýjum titlum í búðina!
Breeders - Mountain Battles [ 4AD]
Kim Deal (Pixies) og félagar snúa aftur eftir langa pásu með glænýja plötu sem Kim hefur verið að vinna að síðan 2002! Breeders brjót a löngu þögn sína með frábæru albúmi sem sýnir að jaðar-rokk 10. áratugar seinustu aldar lifi enn! Enginn annar en Steve Albini sér um upptökur en fær þó smá hjálp frá nokkrum vinum.
Raconteurs - Consolers of the Lonely [XL Recordings ]
Það kom öllum á óvart þegar Raconteurs tilkynntu nýjustu plötu sína aðeins einum degi áður en hún kom út stafrænt og viku áður en hún kom í verslanir! Nú er hún loksins komin í Smekkleysu plötubúð og eru Jack White og hinir strákarnir aldeilis að hressa og kæta alla starfsmenn þar inni! Ekki missa af þessarri!
Mountain Goats - Heretic Pride [ 4AD]
Sextánda (!) plata Mountain Goats hefur verið vel tekið hjá gagnrýnend um og fær m.a.73/ 100 hjá metacritic, 8.0 einkunn hjá pitchforkmedia og fjórar stjörnur af fimm hjá The Guardian. Þessi langlífa sveit sendir frá sér 13 glænýja þjóðlaga-rokk smelli sem gefa fyrri verkum ekkert eftir!
Cadence Weapon - Afterparty Babies
Þessi kanadíski rappari gefur hér út sína aðra breiðskífu. Weapon fæst við dæmigert old school hip-hop sem gætir áhrifa frá evrópsku electro-house senunni. Hefur lagið hans In Search of the Youth Crew notið nokkurra vinsælda á sjálfstæðum miðlum undanfarið . Afterparty Babies er gríðarlega skemmtileg og er ekta plata til að hafa með í hacky-sack leikjunum eða garðveislunum í sumar!
Fleiri titlar sem eru nýkomnir:
Carl Craig - Sessions
Toumani Diabaté - The Mandé Variations
Bob Mould - District Line
Ýmsir - You Don’t Know (Þriggja diska Ninja Tune safnplata!)
Samim - Flow (á CD)
Við erum einnig búin að taka inn skemmtilega seríu af live plötum, en í hulstrinu er einn geisladiskur og einn mynddiskur, báðir með flottum lifandi upptökum. Meðal listamanna í seríunni eru: Marianne Faithful, Marvin Gaye, Dickey Betts, The Pretenders og The Shadows
Svo kom loksins meira af Vampire Weekend plötunni, en fyrsta sendingin seldist upp á augabragði!
Að lokum minnum við á að útsalan er enn í fullum gangi og er verðið frá 249 kr, og í raun flestar plötur og myndir á algjöru rugl verði! Svo á föstudaginn koma Morðingjarnir að spila og gera allt vitlaust með sínu al-íslenska pönki!
Hlökkum til að sjá ykkur !
= = = = = = = = = = = =
Opið:
Mán-Fim: 10:00-18:00
Fös: 10:00- 18:30
Lau: 11:00- 16:00











Entries (RSS)