Ein ástsælasta hljómsveit Íslands fyrr og síðar, Sigur Rós, hefur sent frá sér tilkynningu um heiti og útgáfudag nýjustu breiðskífu sinnar. Breiðskífan mun heita “Með suð í eyrunum við spilum endalaust” og er hún fimmta breiðskífa sveitarinnar. Útgáfudagur plötunnar er 23. júní.

Það er margt sem aðgreinir nýju plötuna frá fyrri verkum sveitarinnar. Fyrir það fyrsta þá er hún ekki tekin upp og unnin af stærstum hluta í hljóðveri sveitarinnar í Álafoss-hvosinni. Upptökur fóru fram í New York, London, Havana á Kúbu og í Sundlauginni í Mosfellsbæ. Upptökum stjórnaði hinn virti upptökustjóri Flood ásamt meðlimum sveitarinnar. Á plötunni er að finna fyrsta lagið sem Jónsi syngur á ensku og er það lokalagskífunnar, “All Alright”. Eitt lag er sungið á “vonlensku” en hin eru öll sungin á íslensku. Platan öll var samin, tekin upp og hljóðblönduð á þessu ári og fyrir vikið má heyra mikla spilagleði og almenna gleði í lagasmíðum sveitarinnar, sem er e.t.v. ný fyrir sumum aðdáendum sveitarinnar.

Lagatitlar og röð er þessi:

1. Gobbledigook
2. Inní mér syngur vitleysingur
3. Góðan daginn
4. Við spilum endalaust
5. Festival
6. Með suð í eyrum
7. Ára bátur
8. Illgresi
9. Fljótavík
10. Straumnes
11. All Alright

Fyrsta smáskífa plötunnar er Gobbledigook og hér má finna frábært myndband við það.

Nánari lesningu um plötuna er hægt að finna hér!!

Næstkomandi mánudag verður hægt að forkaupa plötuna á heimasíðu sveitarinnar og þann 9. júní geta þeir sem hafa forpantað hlustað á plötuna í streymi á síðunni.

Spennandi tímar framundan.

Share and Enjoy: These icons link to social bookmarking sites where readers can share and discover new web pages.
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google
  • Ma.gnolia
  • Spurl
Tags: ,
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Smekkleysa SM / BadTaste SM is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!