Björk, Sigur Rós og Ólöf Arnalds munu koma fram á útitónleikum í Reykjavík þann 28. júní næstkomandi.  “Náttúra” er yfirskrift tónleikanna en tilgangurinn er að fá fólk til að huga að náttúru og náttúruvernd á Íslandi og á heimsvísu.  Tónleikarnir eru haldnir að frumkvæði Bjarkar.

“Náttúra” er heimsviðburður þar sem landsmönnum gefst einstakt tækifæri til að koma á tónleika sem haldnir verða undir berum himni og njóta náttúru og tónlistar þessara frábæru listamanna.  Tónleikarnir verða haldnir í Laugardalnum, nánar tiltekið í brekkunni ofan við þvottalaugarnar og í samstarfi við Reykavíkurborg, en illaga um að hafa tónleikana þar var samþykkt einróma í borgarráði í morgun sem og að borgin styrki tónleikana um fjórar milljónir króna.   

Björk hefur fengið frábærar viðtökur fyrir litríkt og orkumikið sjónar- og eyrnaspil á tónleikaferðalagi sínu um heiminn síðastliðið ár.  Sigur Rós er að gefa út nýja plötu þann 23. júní sem ber heitið “Með suð í eyrum við spilum endalaust”.  Vænst er mikils af þeirri plötu en við gerð hennar unnu þeir með upptökustjóranum Flood sem hefur meðal annars gert plötur með U2 og Smashing Pumpkins.

Listamennirnir vilja vekja athygli á sérstæðri náttúru Íslands og þeim krafti sem nú auðlind veitir okkur og getur veitt kynslóðum framtíðar.  Með tónleikunum vilja listamennirnir hvetja til umræðu meðal almennings og stjórnvalda um hvaða skref við viljum taka inn í framtíðina og vekja áhuga á umhverfisvernd og atvinnugreinum sem hafa ekki óafturkræf áhrif á náttúruna.  

Tónleikarnir verða ókeypis, en frjáls framlög verða vel þegin og mun eiginleg söfnun vegna þeirra hefjast í vikunni fyrir tónleikana.  Söfnunin mun nýtast í uppsetningur á nýrri vefsíðu um mikilvæg svæði á Íslandi.  Fremstu ljósmyndarar og náttúruvísindamenn landsins hafa tekið höndum saman um gerð þessarar síðu.  

Tónleikasvæðið opnar kl. 17:00 og hefjast tónleikarnir kl. 19:00.

21. öldin verður ekki olíuöld heldur öld þekkingar og hugvits, þegar við þurfum að endurvinna, hugsa grænt og umgangast umhverfi okkar í sátt og samvinnu við náttúruna.

Fólk er hvatt til að hjóla, ganga eða hlaupa á tónleikana.  

Share and Enjoy: These icons link to social bookmarking sites where readers can share and discover new web pages.
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google
  • Ma.gnolia
  • Spurl
Tags: , ,
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Smekkleysa SM / BadTaste SM is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!