Björk, Sigur Rós og Ólöf Arnalds munu koma fram á útitónleikum í Reykjavík þann 28. júní næstkomandi. “Náttúra” er yfirskrift tónleikanna en tilgangurinn er að fá fólk til að huga að náttúru og náttúruvernd á Íslandi og á heimsvísu. Tónleikarnir eru haldnir að frumkvæði Bjarkar.
Björk hefur fengið frábærar viðtökur fyrir litríkt og orkumikið sjónar- og eyrnaspil á tónleikaferðalagi sínu um heiminn síðastliðið ár. Sigur Rós er að gefa út nýja plötu þann 23. júní sem ber heitið “Með suð í eyrum við spilum endalaust”. Vænst er mikils af þeirri plötu en við gerð hennar unnu þeir með upptökustjóranum Flood sem hefur meðal annars gert plötur með U2 og Smashing Pumpkins.
Listamennirnir vilja vekja athygli á sérstæðri náttúru Íslands og þeim krafti sem nú auðlind veitir okkur og getur veitt kynslóðum framtíðar. Með tónleikunum vilja listamennirnir hvetja til umræðu meðal almennings og stjórnvalda um hvaða skref við viljum taka inn í framtíðina og vekja áhuga á umhverfisvernd og atvinnugreinum sem hafa ekki óafturkræf áhrif á náttúruna.
Tónleikarnir verða ókeypis, en frjáls framlög verða vel þegin og mun eiginleg söfnun vegna þeirra hefjast í vikunni fyrir tónleikana. Söfnunin mun nýtast í uppsetningur á nýrri vefsíðu um mikilvæg svæði á Íslandi. Fremstu ljósmyndarar og náttúruvísindamenn landsins hafa tekið höndum saman um gerð þessarar síðu.
Tónleikasvæðið opnar kl. 17:00 og hefjast tónleikarnir kl. 19:00.
21. öldin verður ekki olíuöld heldur öld þekkingar og hugvits, þegar við þurfum að endurvinna, hugsa grænt og umgangast umhverfi okkar í sátt og samvinnu við náttúruna.
Fólk er hvatt til að hjóla, ganga eða hlaupa á tónleikana.









Entries (RSS)