Náttúra // Ísbjarnablús
Organ
Laugardaginn 21. júní
kl 22:00
Fram koma: FM Belfast og kimono

Næstkomandi laugardagskvöld, þann 21. júní, ætla hljómsveitirnar FM Belfast og kimono og halda tónleika á Organ, sem einhverskonar upphitun fyrir Náttúru tónleika Bjarkar og Sigur Rósar sem fyrirhugaðir eru þann 28. júní.  Sveitirnar vonast til að vekja athygli á einmitt Náttúru Íslands og verndun hennar, sem og ferðum áttaviltra ísbjarna fyrir norðan.  Því er yfirskrift tónleikanna Náttúra // Ísbjarnablús og tekið skal fram að ekkert samráð var haft við Bubba þegar kom að skírn tónleikanna.  Aftur á móti var haft gott samráð við skipuleggjendur Náttúru tónleikanna í Laugardal. 

Okkur finnst kominn tími til að íslendingar vakni af vondum draumi og fari að láta sig náttúruna varða. Lengi vel höfum við búið við óspillta náttúru sem aðrar þjóðir öfunda okkur af, en svo virðist sem ýmis öfl ætli sér að skaða náttúru okkar og ímynd þjóðarinnar með gengdarlausum virkjunum og stóriðjum í eigin þágu en á okkar reikning. En það er auðvelt að benda fingrinum á aðra en erfiðara að líta í eigin barm.  Það er og margt sem við getum sjálf gert til að bæta þetta ástand og best að byrja á sjálfum sér áður en maður fer að fetta fingur út í það sem aðrir gera. Þetta byrjar inn á heimilinu, þar sem maður getur endurunnið sorp og matarleyfar, dagblöð og dósir. Maður getur lagt bílnum og tekið fram reiðhjólið; hent sígarettustubbunum í næstu ruslafötu en ekki á götuna. Ég trúi því að ef maður setur sjálfan sig í ákveðið hugarástand þá smitar það loks frá sér út í þjóðfélagið þangað til hugulsemi gagnvart náttúrunni verður normið. 

Eins fór það illa fyrir brjósið á okkur að sjá ekki einn, heldur tvo hvítabirni skotna fyrir norðan, enda dýr i útrýmingahættu sem höfðu og engu neitt ill gert. Með tónleikunum viljum við hvetja ráðandi öfl til að vera betur undirbúin þegar sá þriðji gengur á land. Kanadamenn hafa lengi þótt snjallir í að fanga þessi dýr, þegar þau hafa heimsótt okkur mannskepnunar, og koma þeim aftur til heimkynna sinna og felst í þessu áskorun til stjórnvalda að kynna sér þær aðferðir sem kanadabúar beita. 

Tökum höndum saman á laugardaginn og látum í okkur heyra. Við ætlum allaveganna að gera það.

Share and Enjoy: These icons link to social bookmarking sites where readers can share and discover new web pages.
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google
  • Ma.gnolia
  • Spurl
Tags: ,
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Smekkleysa SM / BadTaste SM is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!