Það styttist nú í tónleika Gus Gus á Nasa. Prímusmótórar sveitarinnar, President Bongo og Biggi Veira, hafa frá áramótum unnið að nýju og rassvöðvastyrkjandi góðmeti fyrir eyru, augu og danslimi. Þetta nýja efni mun svo mynda hryggjarstykki næstu breiðskífu sveitarinnar sem kemur út snemma á næsta ári hér á landi og útí heimi.
Gus Gus halda sína fyrstu tónleika á árinu, þ.e. á sínum heimavelli næstkomandi laugardag kl. 23:59. Í daglegu tali kannast almenningur við heimavöll sveitarinnar undir nafninu Nasa. Verið er að vinna í því að skipta hljóðkerfi staðarins út fyrir annað svo að hljóðkröfum sveitarinnar verði fullnægt sem og að tónlistin skili sér 100% til aðdáenda.
Tónleikaprógrammið verður að miklu leyti samansett af nýju efni sem að hluta til var flutt á stærstu tónleikum sveitarinnar hér á landi í Laugardalshöll í júní - annað efni er splunkunýtt og hefur aldrei heyrst á tónleikum áður.
Á heimavelli er sveitin aldrei betri og nálægðin í fyrirrúmi. Miðasala er í fullum gangi á miði.is og eru miðar að seljast upp.
Aðgangseyrir er 2500 kr.
Af öðrum tíðindum þá hefur sveitin verið að troða uppá tónlistarhátíðum á borð við Melt, Creamfields, Nu Note Lounge, Spitafield Airwaves o.fl. í Evrópu. Gus Gus hafa verið að deila sviðum með stærstu nöfnunum innan danstónlistarinnar sem og stórum nöfnum á borð við Björk, Hot Chip, Kate Nash, Stereo MC’s, Roisin Murphy, Ladytron o.s.frv.
Nánari upplýsingar:
http://www.gusgus.com
http://www.myspace.com/gusgus
http://www.myspace.com/alltafistudi
http://www.jonjonsson.is/









Entries (RSS)