Fimmmenningarnir í Jeff Who? senda frá sér samnefnda breiðskífu í dag, 14. nóvember.  Jeff Who? er önnur breiðskífa sveitarinnar en þeirra fyrsta breiðskífa kom út árið 2005 og skartaði hún m.a. vinsælasta laginu á Íslandi árið 2006.

Í fyrra sendi Jeff Who? frá sér fyrsta lagið á nýju plötunni og var það “She’s Got the Touch” og
fékk það mikla spilun en segja má samt að fyrsta opinbera smáskífan sé við lagið “Congratulations” sem er gríðarlega vinsælt um þessar mundir.

Upptökustjóri Jeff Who? er Axel “Flex” Árnason og er óhætt að segja að hans innslag sé að vissu leyti stefnubreytandi fyrir sveitina.  Axel hefur einstakt lag á því að ná því besta fram úr hljómsveitum og listamönnum og er engin undantekning hér á.  Axel hefur áður tekið upp skífur með Mammút, Bang Gang, Lödu Sport o.s.frv.

Um strengjaútsetningar á plötunni sér náungi að nafni Anton Patzner.    Anton þessi hefur getið sér gott orð sem meðlimur í tónleikasveit hins hæfileikaríka tónlistarmanns Bright Eyes og hljómsveitarinnar The Faint.  Anton spilaði einnig inn á EP-plötu Bright Eyes ‘Four Winds’ og á breiðskífunni ‘Cassadaga’ sem hlotið hefur töluverðrar hylli hérlendis sem og erlendis.

Meðal annara gesta á plötunni eru Esther Talía Casey og Haukur Gröndal saxófónleikari.

Þú getur keypt hana núna og fengið senda í pósti! OG fengið mp3 niðurhal strax!

Share and Enjoy: These icons link to social bookmarking sites where readers can share and discover new web pages.
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Facebook
  • Mixx
  • Google
  • Ma.gnolia
  • Spurl
Tags:
Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Smekkleysa SM / BadTaste SM is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!