Author Archive

FM Belfast
Reykjavík!
Skátar
– DJ Benni (úr útvarpsþáttunum Karate, Marzipan og álitsgjafi)
Það verður sannkölluð veisla fyrir eyrað þegar þrjár af fremstu og hressustu hljómsveitum höfuðstaðarins leiða saman múlasna sína á Organ, nk laugardagskvöld.
Reykjavík! er að leggja lokahönd á nýja breiðskífu sem tekin er upp af óhljóðameistaranum Ben Frost og bíður íslenskur rokkheimur með öndina í hálsinum eftir nýju efni frá sveitinni.
Skátar hafa nýverið lokið við stuttskífu sem miklar vonir eru bundnar við. Skífan Ghosts of the Bollocks to Come var hreint út sagt frábær og þeir sem heyrt hafa nýja efnið halda vart vatni.
FM Belfast hefur fyrir löngu stimplað sig inn sem sú allra-allra skemmtilegasta tónleikasveit sem Ísland hefur alið. Árni Plúseinn, Lóa og félagar er einnig í útgáfuhug, en Árni Plúseinn er, öðrum að ólöstuðu, einn framtaksmesti tónlistarmaðurinn í dag.
DJ Benni, sem stýrt hefur eðal útvarpsþáttum eins og Karate og Marzípan ætlar svo að spila plötur á milli atriða og að tónleikum loknum.
Vonumst til að sjá sem flesta.
-Organizerinn
Organ
Laugardaginn 6. september
kl 22:00
1000 kr
20 ára aldurstakmark
Tags: fm belfast, organ, reykjavík!, skátar
No Comments »

Kira Kira sendi í júní frá sér sína aðra breiðskífu í fullri lengd. Hún hefur verið að fá prýðis viðtökur hér á landi sem og í Japan þar sem platan platan kom út samtímis hjá After Hours útgáfunni. Á meðfylgjandi mynd má sjá son útgefanda Kiru í Japan fyrir framan stórt og glæsilegt plakat af plötunni í Tower Records í Shibuya hverfi Tokyo-borgar.
Kira Kira fór í stutta tónleikaferð til Noregs og Svíþjóðar og spilaði á tónlistarhátíðum með nafntoguðum tónlistarmönnum og hljómsveitum á borð við Ane Brun, Blondie, Blonde Redhead, Dungen, Mudhoney o.s.frv.
Framundan eru fleiri tónleikar á erlendri grundu sem og á Íslandinu góða.
Nánari upplýsingar og tóndæmi:
this.is/kirakira
www.myspace.com/trallaladykirakira
www.kitchenmotors.com
Kaupið “Our Maps to the Monster Olympics” hér.
Tags: kira kira, Our Map to the Monster Olympics
No Comments »
Það styttist nú í tónleika Gus Gus á Nasa. Prímusmótórar sveitarinnar, President Bongo og Biggi Veira, hafa frá áramótum unnið að nýju og rassvöðvastyrkjandi góðmeti fyrir eyru, augu og danslimi. Þetta nýja efni mun svo mynda hryggjarstykki næstu breiðskífu sveitarinnar sem kemur út snemma á næsta ári hér á landi og útí heimi.
Gus Gus halda sína fyrstu tónleika á árinu, þ.e. á sínum heimavelli næstkomandi laugardag kl. 23:59. Í daglegu tali kannast almenningur við heimavöll sveitarinnar undir nafninu Nasa. Verið er að vinna í því að skipta hljóðkerfi staðarins út fyrir annað svo að hljóðkröfum sveitarinnar verði fullnægt sem og að tónlistin skili sér 100% til aðdáenda.
Tónleikaprógrammið verður að miklu leyti samansett af nýju efni sem að hluta til var flutt á stærstu tónleikum sveitarinnar hér á landi í Laugardalshöll í júní - annað efni er splunkunýtt og hefur aldrei heyrst á tónleikum áður.
Á heimavelli er sveitin aldrei betri og nálægðin í fyrirrúmi. Miðasala er í fullum gangi á miði.is og eru miðar að seljast upp.
Aðgangseyrir er 2500 kr.
Af öðrum tíðindum þá hefur sveitin verið að troða uppá tónlistarhátíðum á borð við Melt, Creamfields, Nu Note Lounge, Spitafield Airwaves o.fl. í Evrópu. Gus Gus hafa verið að deila sviðum með stærstu nöfnunum innan danstónlistarinnar sem og stórum nöfnum á borð við Björk, Hot Chip, Kate Nash, Stereo MC’s, Roisin Murphy, Ladytron o.s.frv.
Nánari upplýsingar:
http://www.gusgus.com
http://www.myspace.com/gusgus
http://www.myspace.com/alltafistudi
http://www.jonjonsson.is/
Tags: forever, gus gus, nasa
No Comments »
Posted by: Smekkleysa in News

We have a new location at Laugavegur 35. It is bigger and better and a new location. Og á íslensku: Ný búð á Laugavegi 35, stærri og grænni og fullt af tónlist og DVD.
Tags: Smekkleysa Shop
No Comments »
Posted by: Smekkleysa in News
Afmælishátíð Organ, 1.-3. ágúst 2008
Hér kemur fullt line-up og tímasetningar atriða á Afmælishátíð Organ. Hátíðin er vegleg og hér ægir saman hljómsveitum sem fólk þekkir og elskar í bland við óþekktar en afar spennandi stærðir. Það þykir því við hæfi, þegar litið er yfir síðasta ár, að hátíðin hefjist og endi á hljómsveitum sem við erum fullviss um að muni setja mark sitt á hið næsta. Þó að á hátíðinni sé að stórum hluta hampað listamönnum sem hafa sett mark sitt á þetta fyrsta ár Organ þá er full ástæða til að horfa björtum augum fram á veginn og munu því DLX ATX (borið fram Deluxe Attacks) hefja leika og önnur álíka spennandi sveit, Kid Twist, enda hátíðina. Hvetjum við fólk til að fylgjast sérstaklega með leik þessara tveggja sveita. Aftur á móti er óþarfi að fjölyrða um mátt sveita eins og Mínuss, Diktu, Skáta, Jeff Who?, Ælu, BB&BLAKE, Jan Mayen, Bjartmars Guðlaugssonar osfrv.
Miðaverð er 1000 kr á hvert kvöld,
aldurstakmarkið er 20 ár
Óformlegt afmælisgrill mun fara fram í garðinum við Organ á sunnudaginn klukkan 17:00 og er öllum boðið að mæta og þiggja grillveitingar með okkur.
Line Up 01.08.08
10:00:00 DLX ATX
10:45:00 Jan Mayen
11:30:00 Æla
12:30:00 Dikta
1:30:00 Skátar
2:30:00 Mínus
Line Up 02.08.08
10:00:00 thundercats
10:45:00 Evil Madness
11:30:00 Bjartmar Guðlaugsson
12:30:00 Jeff Who?
1:30:00 BB&BLAKE
Line Up 03.08.08
10:00:00 My Summer As A Salvation Soldier
10:45:00 Elín Ey
11:30:00 Diversion Sessions
12:30:00 Spacevestides
1:30:00 Kid Twist
Tags: Dikta, jan mayen, jeff who?, mínus, æla
No Comments »

We just can’t stop. We have opened up a new shop @ Laugavegur 35 in centre of Reykjavik. This shop will be open as of now!
We will carry a good selection of our titles and other good icelandic music.
please stop by at Laugavegur 35.
Tags: Smekkleysa Shop
No Comments »
Posted by: Smekkleysa in News
Náttúra // Ísbjarnablús
Organ
Laugardaginn 21. júní
kl 22:00
Fram koma: FM Belfast og kimono
Næstkomandi laugardagskvöld, þann 21. júní, ætla hljómsveitirnar FM Belfast og kimono og halda tónleika á Organ, sem einhverskonar upphitun fyrir Náttúru tónleika Bjarkar og Sigur Rósar sem fyrirhugaðir eru þann 28. júní. Sveitirnar vonast til að vekja athygli á einmitt Náttúru Íslands og verndun hennar, sem og ferðum áttaviltra ísbjarna fyrir norðan. Því er yfirskrift tónleikanna Náttúra // Ísbjarnablús og tekið skal fram að ekkert samráð var haft við Bubba þegar kom að skírn tónleikanna. Aftur á móti var haft gott samráð við skipuleggjendur Náttúru tónleikanna í Laugardal.
Okkur finnst kominn tími til að íslendingar vakni af vondum draumi og fari að láta sig náttúruna varða. Lengi vel höfum við búið við óspillta náttúru sem aðrar þjóðir öfunda okkur af, en svo virðist sem ýmis öfl ætli sér að skaða náttúru okkar og ímynd þjóðarinnar með gengdarlausum virkjunum og stóriðjum í eigin þágu en á okkar reikning. En það er auðvelt að benda fingrinum á aðra en erfiðara að líta í eigin barm. Það er og margt sem við getum sjálf gert til að bæta þetta ástand og best að byrja á sjálfum sér áður en maður fer að fetta fingur út í það sem aðrir gera. Þetta byrjar inn á heimilinu, þar sem maður getur endurunnið sorp og matarleyfar, dagblöð og dósir. Maður getur lagt bílnum og tekið fram reiðhjólið; hent sígarettustubbunum í næstu ruslafötu en ekki á götuna. Ég trúi því að ef maður setur sjálfan sig í ákveðið hugarástand þá smitar það loks frá sér út í þjóðfélagið þangað til hugulsemi gagnvart náttúrunni verður normið.
Eins fór það illa fyrir brjósið á okkur að sjá ekki einn, heldur tvo hvítabirni skotna fyrir norðan, enda dýr i útrýmingahættu sem höfðu og engu neitt ill gert. Með tónleikunum viljum við hvetja ráðandi öfl til að vera betur undirbúin þegar sá þriðji gengur á land. Kanadamenn hafa lengi þótt snjallir í að fanga þessi dýr, þegar þau hafa heimsótt okkur mannskepnunar, og koma þeim aftur til heimkynna sinna og felst í þessu áskorun til stjórnvalda að kynna sér þær aðferðir sem kanadabúar beita.
Tökum höndum saman á laugardaginn og látum í okkur heyra. Við ætlum allaveganna að gera það.
Tags: fm belfast, kimono
No Comments »
Posted by: Smekkleysa in News
We are pleased to announce an outdoor concert featuring Björk, Sigur Rós, Ólöf Arnalds. The concert will take place in Reykjavík, Iceland, on the June 28th. It will be held in Laugardalur, in Þvottalaugabrekkunni. The Concert will be free. Doors will open at 17.00 and end around 22.00
The goal of the concert is to raise awareness on environmental issues in Iceland, as Björk explains in conversation with Jóhann Bjarni Kolbeinsson:

“Neither me or Sigur Rós look at ourselves as experts on nature, or as politicians, but we do travel a lot and we believe we know a lot about what image Iceland has abroad, and that we are far behind when it comes to being” Says Björk when asked how the concert came to be. “I spent for example 2 months in South-America and there you saw the poor doing recycling. We can’t be 30 years behind, we need to work together on this and preferably we should be leading the way.”
“Too often battles being fought for nature turn into something negative and into mudslinging. We will not go that way, we are not saying that this and that is forbidden, we are rather asking “what about all these other possibilites?“. The 21st century is not going to be another oil century but rather a century where we need to recycle, think green and design both power plants and our surroundings in harmony with nature.”
[jbk in mbl.is ]
[This is taken from www.bjork.com]
Tags: björk, ólöf arnalds, sigur rós
4 Comments »
Björk, Sigur Rós og Ólöf Arnalds munu koma fram á útitónleikum í Reykjavík þann 28. júní næstkomandi. “Náttúra” er yfirskrift tónleikanna en tilgangurinn er að fá fólk til að huga að náttúru og náttúruvernd á Íslandi og á heimsvísu. Tónleikarnir eru haldnir að frumkvæði Bjarkar.
“Náttúra” er heimsviðburður þar sem landsmönnum gefst einstakt tækifæri til að koma á tónleika sem haldnir verða undir berum himni og njóta náttúru og tónlistar þessara frábæru listamanna. Tónleikarnir verða haldnir í Laugardalnum, nánar tiltekið í brekkunni ofan við þvottalaugarnar og í samstarfi við Reykavíkurborg, en illaga um að hafa tónleikana þar var samþykkt einróma í borgarráði í morgun sem og að borgin styrki tónleikana um fjórar milljónir króna.
Björk hefur fengið frábærar viðtökur fyrir litríkt og orkumikið sjónar- og eyrnaspil á tónleikaferðalagi sínu um heiminn síðastliðið ár. Sigur Rós er að gefa út nýja plötu þann 23. júní sem ber heitið “Með suð í eyrum við spilum endalaust”. Vænst er mikils af þeirri plötu en við gerð hennar unnu þeir með upptökustjóranum Flood sem hefur meðal annars gert plötur með U2 og Smashing Pumpkins.
Listamennirnir vilja vekja athygli á sérstæðri náttúru Íslands og þeim krafti sem nú auðlind veitir okkur og getur veitt kynslóðum framtíðar. Með tónleikunum vilja listamennirnir hvetja til umræðu meðal almennings og stjórnvalda um hvaða skref við viljum taka inn í framtíðina og vekja áhuga á umhverfisvernd og atvinnugreinum sem hafa ekki óafturkræf áhrif á náttúruna.
Tónleikarnir verða ókeypis, en frjáls framlög verða vel þegin og mun eiginleg söfnun vegna þeirra hefjast í vikunni fyrir tónleikana. Söfnunin mun nýtast í uppsetningur á nýrri vefsíðu um mikilvæg svæði á Íslandi. Fremstu ljósmyndarar og náttúruvísindamenn landsins hafa tekið höndum saman um gerð þessarar síðu.
Tónleikasvæðið opnar kl. 17:00 og hefjast tónleikarnir kl. 19:00.
21. öldin verður ekki olíuöld heldur öld þekkingar og hugvits, þegar við þurfum að endurvinna, hugsa grænt og umgangast umhverfi okkar í sátt og samvinnu við náttúruna.
Fólk er hvatt til að hjóla, ganga eða hlaupa á tónleikana.
Tags: björk, náttúra, sigur rós
No Comments »
|