Posts Tagged “fm belfast”


FM Belfast
Reykjavík!

Skátar
– DJ Benni (úr útvarpsþáttunum Karate, Marzipan og álitsgjafi)

Það verður sannkölluð veisla fyrir eyrað þegar þrjár af fremstu og hressustu hljómsveitum höfuðstaðarins leiða saman múlasna sína á Organ, nk laugardagskvöld.

Reykjavík! er að leggja lokahönd á nýja breiðskífu sem tekin er upp af óhljóðameistaranum Ben Frost og bíður íslenskur rokkheimur með öndina í hálsinum eftir nýju efni frá sveitinni.

Skátar hafa nýverið lokið við stuttskífu sem miklar vonir eru bundnar við. Skífan Ghosts of the Bollocks to Come var hreint út sagt frábær og þeir sem heyrt hafa nýja efnið halda vart vatni.

FM Belfast hefur fyrir löngu stimplað sig inn sem sú allra-allra skemmtilegasta tónleikasveit sem Ísland hefur alið. Árni Plúseinn, Lóa og félagar er einnig í útgáfuhug, en Árni Plúseinn er, öðrum að ólöstuðu, einn framtaksmesti tónlistarmaðurinn í dag.
DJ Benni, sem stýrt hefur eðal útvarpsþáttum eins og Karate og Marzípan ætlar svo að spila plötur á milli atriða og að tónleikum loknum.
Vonumst til að sjá sem flesta.
-Organizerinn

Organ
Laugardaginn 6. september
kl 22:00
1000 kr
20 ára aldurstakmark

Tags: , , ,

Comments No Comments »

Náttúra // Ísbjarnablús
Organ
Laugardaginn 21. júní
kl 22:00
Fram koma: FM Belfast og kimono

Næstkomandi laugardagskvöld, þann 21. júní, ætla hljómsveitirnar FM Belfast og kimono og halda tónleika á Organ, sem einhverskonar upphitun fyrir Náttúru tónleika Bjarkar og Sigur Rósar sem fyrirhugaðir eru þann 28. júní.  Sveitirnar vonast til að vekja athygli á einmitt Náttúru Íslands og verndun hennar, sem og ferðum áttaviltra ísbjarna fyrir norðan.  Því er yfirskrift tónleikanna Náttúra // Ísbjarnablús og tekið skal fram að ekkert samráð var haft við Bubba þegar kom að skírn tónleikanna.  Aftur á móti var haft gott samráð við skipuleggjendur Náttúru tónleikanna í Laugardal. 

Okkur finnst kominn tími til að íslendingar vakni af vondum draumi og fari að láta sig náttúruna varða. Lengi vel höfum við búið við óspillta náttúru sem aðrar þjóðir öfunda okkur af, en svo virðist sem ýmis öfl ætli sér að skaða náttúru okkar og ímynd þjóðarinnar með gengdarlausum virkjunum og stóriðjum í eigin þágu en á okkar reikning. En það er auðvelt að benda fingrinum á aðra en erfiðara að líta í eigin barm.  Það er og margt sem við getum sjálf gert til að bæta þetta ástand og best að byrja á sjálfum sér áður en maður fer að fetta fingur út í það sem aðrir gera. Þetta byrjar inn á heimilinu, þar sem maður getur endurunnið sorp og matarleyfar, dagblöð og dósir. Maður getur lagt bílnum og tekið fram reiðhjólið; hent sígarettustubbunum í næstu ruslafötu en ekki á götuna. Ég trúi því að ef maður setur sjálfan sig í ákveðið hugarástand þá smitar það loks frá sér út í þjóðfélagið þangað til hugulsemi gagnvart náttúrunni verður normið. 

Eins fór það illa fyrir brjósið á okkur að sjá ekki einn, heldur tvo hvítabirni skotna fyrir norðan, enda dýr i útrýmingahættu sem höfðu og engu neitt ill gert. Með tónleikunum viljum við hvetja ráðandi öfl til að vera betur undirbúin þegar sá þriðji gengur á land. Kanadamenn hafa lengi þótt snjallir í að fanga þessi dýr, þegar þau hafa heimsótt okkur mannskepnunar, og koma þeim aftur til heimkynna sinna og felst í þessu áskorun til stjórnvalda að kynna sér þær aðferðir sem kanadabúar beita. 

Tökum höndum saman á laugardaginn og látum í okkur heyra. Við ætlum allaveganna að gera það.

Tags: ,

Comments No Comments »

Smekkleysa SM / BadTaste SM is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!