Posts Tagged “kimono”

Náttúra // Ísbjarnablús
Organ
Laugardaginn 21. júní
kl 22:00
Fram koma: FM Belfast og kimono

Næstkomandi laugardagskvöld, þann 21. júní, ætla hljómsveitirnar FM Belfast og kimono og halda tónleika á Organ, sem einhverskonar upphitun fyrir Náttúru tónleika Bjarkar og Sigur Rósar sem fyrirhugaðir eru þann 28. júní.  Sveitirnar vonast til að vekja athygli á einmitt Náttúru Íslands og verndun hennar, sem og ferðum áttaviltra ísbjarna fyrir norðan.  Því er yfirskrift tónleikanna Náttúra // Ísbjarnablús og tekið skal fram að ekkert samráð var haft við Bubba þegar kom að skírn tónleikanna.  Aftur á móti var haft gott samráð við skipuleggjendur Náttúru tónleikanna í Laugardal. 

Okkur finnst kominn tími til að íslendingar vakni af vondum draumi og fari að láta sig náttúruna varða. Lengi vel höfum við búið við óspillta náttúru sem aðrar þjóðir öfunda okkur af, en svo virðist sem ýmis öfl ætli sér að skaða náttúru okkar og ímynd þjóðarinnar með gengdarlausum virkjunum og stóriðjum í eigin þágu en á okkar reikning. En það er auðvelt að benda fingrinum á aðra en erfiðara að líta í eigin barm.  Það er og margt sem við getum sjálf gert til að bæta þetta ástand og best að byrja á sjálfum sér áður en maður fer að fetta fingur út í það sem aðrir gera. Þetta byrjar inn á heimilinu, þar sem maður getur endurunnið sorp og matarleyfar, dagblöð og dósir. Maður getur lagt bílnum og tekið fram reiðhjólið; hent sígarettustubbunum í næstu ruslafötu en ekki á götuna. Ég trúi því að ef maður setur sjálfan sig í ákveðið hugarástand þá smitar það loks frá sér út í þjóðfélagið þangað til hugulsemi gagnvart náttúrunni verður normið. 

Eins fór það illa fyrir brjósið á okkur að sjá ekki einn, heldur tvo hvítabirni skotna fyrir norðan, enda dýr i útrýmingahættu sem höfðu og engu neitt ill gert. Með tónleikunum viljum við hvetja ráðandi öfl til að vera betur undirbúin þegar sá þriðji gengur á land. Kanadamenn hafa lengi þótt snjallir í að fanga þessi dýr, þegar þau hafa heimsótt okkur mannskepnunar, og koma þeim aftur til heimkynna sinna og felst í þessu áskorun til stjórnvalda að kynna sér þær aðferðir sem kanadabúar beita. 

Tökum höndum saman á laugardaginn og látum í okkur heyra. Við ætlum allaveganna að gera það.

Tags: ,

Comments No Comments »

Grandmothers Party Records

21.aldar USB lyklapartý, tónleikar og gargandi fögnuður á næturklúbbnum og tónleikastaðnum Organ

(Hafnarstræti 1 - 3) föstudagskvöldið 9. maí næstkomandi helgi.

Allar plötur Grandmothers records verða nú loks fánlegar í fullum stafrænum gæðum inná Grapewire.net. Þetta eru fimm breiðskífur sem hafa komið út frá árinu 2000 til 2007.
Takmarkað upplag þeirra er nú löngu uppselt fyrir utan nýjustu breiðskífu Skáta; Ghost of the Bollocks to Come. Sú plata var valin plata ársins 2007 af menningar tímaritinu Grapevine. Væntanleg er plata frá Retron í haust en Viðar Hákon Gíslason er að mixa gripinn með Retron. Af þessu tilefni munum við fagna, gleðjast og spila tónleika ásamt vinum okkar í Sudden Weather Change, Kimono, Kiru Kiru, Dlx Atx, Clap for Alaska og Klive. Þess má geta að Klive mun flytja efni af debut breiðskífu sinni Sweaty Psalms sem kemur út daginn áður eða 8. maí. Kimono og Retron hafa nýlokið við minitúr um Belgíu og eru bæði bönd því sjóðandi heit, eftir vel heppnaða tónleikaferð saman.
Kira Kira er að gefa út sína aðra breiðskífu í þessum mánuði en útgáfutónleikar hennar verða tilkynntir von bráðar. Sú plata kemur einnig út í Japan í haust. Kira Kira og Skátar munu leiða saman hesta sína þetta kvöld en hljóðfæraskipan mun líklega koma einhverjum á óvart.

Partýið hefst klukkan 21:00 á neðri hæð Organ með óvæntum uppákomum, Rambósamlokum og fleiri góðum veitingum. Plötusnúður kvöldsins er Elvar ( betur þekktur sem AuxPan ) en hann mun m.a. spila sjaldgæft og vandfundna Kántrý tónlist í skemmtilegri kantinum.

Plötur sem hafa komið út undir merkjum GMR eru í tímaröði þessar:

Anguma 2000 / Sofandi, Ugly Demos 2001/ Sofandi,
Roughness & Toughness 2003 / Graveslime,
Heimsfriður í Chile 2005 / Skátar
Ghost of the Bollocks to Come 2007 / Skátar

Allt kvöldið verður hægt að versla allar plöturnar á stafrænu formi á
staðnum og hlaða þeim niður á usb lykil, ipod o.s.frv.

Allir sem mæta á tónleikana geta fengið 5 lög frá GMR ókeypis beint inná USB lykil á staðnum eða fengið kóða og hlaðið þeim niður seinna á http://www.grapewire.net

Klive, Kira Kira , Clap for Alaska og fleiri af flytjendum kvöldsins munu einnig hafa lög sín í boði fyrir tónlistarþyrsta gesti og USB lyklana þeirra. MUNA eftir USB lyklinum!!!

Takk fyrir og sjáumst hress ,
Grandmothers records og vinir.

www.Grapewire.net

Tóndæmi og nánari upplýsingar um böndin er hægt að finna á:

www.myspace.com/skatar
www.myspace.com/retron
www.myspace.com/clapforteamalaska
www.myspace.com/suddenweatherchange
www.myspace.com/kliveisklive
www.myspace.com/kirakira

www.myspace.com/organreykjavik

Grandmothersrecords@gmail.com
www.myspace.com/grossmutterrekords

Tags: , , , , , ,

Comments No Comments »

bozar_dates.png     We are are heading out to Belgium for a Massive one day festival at Bozar Art Centre. Make shure that you can be there on the 30th of April. EDGY EVENING of BAD TASTE The art scene in Iceland is notorious for a diversity and eclecticism that has led many to think that all Icelanders are mad. Judge for yourself at the EDGY EVENING of BAD TASTE where musicians, poets and artists from every nook and cranny of Iceland will be at their most kooky and uncanny. Collaborations of unexpected proportions will ensue followed by a DJ-set until dawn or until everyone is dead, whichever comes first. Icelandic artists strongly dislike being pigeonholed, so here is a cursory glance at what each one of them does. And the artists performing:

Ásdís Sif

Byrkir

DJ Magic

Ghostigital

Eiríkur Örn Norðdahl

Finnbogi Pétursson

Helmus und Dalli

Hrafnkell Sigurðsson

Ingibjörg Magnadóttir

Lay Low

kimono

Kristín Svava Tómasdóttir

Radium

Ragnar Kjartansson

Retrön

riceboy sleeps

Sjón

Steintryggur

Stilluppsteypa

Technowitch

Örvar Þóreyjarson Smárason

We have done a small myspace!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,

Comments No Comments »

 Sólarsamba    

Það hefur löngum þótt til siðs að halda upp á komu sumarsins á Íslandi. Samkvæmt íslensku almanaki gengur sumarið í garð á miðnætti þann 24. apríl og gefur þessi dagsetning ærið tækifæri til fagnaðarfunda. Því hafa tímaritið Reykjavík Grapevine og tónlistarbúllan Organ, í sólarsamstarfi við útvarp allra landsmanna, Rás 2, og Thule, kallað til sumarglaðnings á Organ þann 23. apríl.  Fram koma sveitirnar Seabear, Skátar, kimono og Swords of Chaos auk þess sem sérstakir heiðursgestir verða Magnús Kjartansson og Magga Gauja og flytja gestum lagið Sólarsamba. Lagið á 20 ára afmæli núna í vor og því tilvalið að dusta rykið af þessum þemasöng íslenska sumarsins og kynna það vonandi fyrir nýjum kynslóðum. Lag þetta var sem límt við heila landsmanna þegar það braust fram á sjónarsviðið árið 1988 og má nefna að það var í texta þessa lag sem nýyrðið “bongóblíða”skaut fyrst upp kollinum. Í dag er ekki útskrifaður veðurfræðingur á Íslandi án þess að hann hafi tamið sér notkun þessa orðs. 

 

Hljómsveitin Seabear hefur aldeilis sótt í sig veðrið síðustu misseri og hugljúft indie-pop Sindra Más og félaga fallið í kramið hjá löndum okkar sem og öðrum þjóðum, enda hefur Seabear ferðast grimmt um heiminn og öðlast fjölda aðdáenda hvar sem sveitin hefur sett niður fótinn. Til gamans má geta að Seabear kom fyrst fram á tónleikum með kimono í Þjóðleikhúskjallaranum 2. febrúar 2006 en síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Fyrsta eiginlega breiðskífa Seabear kom út hjá hinni virtu útgáfu Morr Music í fyrra.     

Skáta þarf vart að kynna fyrir fjöldanum. Plata þeirra, “Ghost of the Bollocks to come” deildi 1. sæti árslista Reykjavik Grapevine fyrir 2007 með I Adapt plötunni “Chainlike Burden” og eru því vel að því komnir að spila á sumarhátíð sama tímarits. Tónlist þeirra er með því líflegra sem sjá má á sviði og sjá má fólk með galopna munna, furðu lostið þegar þeir framkalla súrann en stórskemmtilegann bræðing rokks eins og það hefur aldrei áður verið framreitt. Skátar leggja nú drög að þremur sjötommu og stafrænum smáskífum sem munu líta dagsins ljós á árinu. 

kimono er sennilega elst þeirra sveita sem kemur fram á tónleikunum, tæpra átta ára og hafa skilið eftir sig þrjár plötur (Mineur Aggressif 2003, Arctic Death Ship 2005 og Curver+kimono 2007). Sveitin hefur lítið á sér bera undanfarin misseri en þessir tónleikar marka breytingu þar á. kimono hafa setið sveittir við lagasmíðar og upptökur og hafa lofað því að tónleikaprógrammið í heild sinni verið samsett nýjum lögum.  Því verður ekki lengi að bíða að fjórða skífa þeirra líti dagsins ljós. Heldur sveitin svo í víking til Belgíu nokkrum dögum eftir tónleikana þar sem tekinn verður mini-tour fernra tónleika. 

Swords of Chaos er hópur fólks sem strokið hafa hljóðfærunum sínum saman frá því veturinn 2006. Hópurinn hefur áður komið fram í frumstæðara einstaklings formi í hljómsveitum á borð við Somniferum, The Ministry of Foreign Affairs, Big Kahuna, Gone Postal og Klive, s.s. allt frá síðrokki til svarta málms. Fullir af eðlisfræðilegum áhrifum um endalok heimsins, mikla hvell og hugsanlega vitneskju um alheim útbúin aðeins úr andefnum sjálfs síns koma Swords of Chaos fullir sjálfstrausts sem ferskur blær inn í tónlistargrýtu landsins. En þar sem framtíðin er glundroði og allt fyrir handan hana er frelsið sjálft spilar hljómsveitin blöndu af hávaðarokki í bland við harðkjarna og svarta málms áhrif, í anda hljómsveita eins og Fugazi, The Fucking Champs, Defeated Sanity, Death og Immolation. Framtíð framtíðarinnar er björt. Dómsdagurinn er í höndum Swords of Chaos.

DJ Bobby Breiðholt er einstaklega skemmtilegur DJ og Bloggari:

http://breidholt.blogspot.com/
http://www.balladofbob.blogspot.com/

Á dagskránni hans er m.a. soft rock, indie, italo disco, leftfield 80’s og fleira geggjað shit!
Við vonum að sem flestir mæti og fagni sumrinu með rjóma íslenskrar tónlistar síðari daga og fyrri.

 

 

 

 

 

Hlekkir:

The Reykjavik Grapevine
Skátar
kimono
Seabear
Swords Of Chaos

Organ

Organ, Hafnarstræti 1-3 (bakhús)
Miðvikudaginn 23. apríl (Síðasta Vetrardag)
Frá 22:00 - 05:00
1000 krónu aðgangseyrir
20 ára aldurstakmark

Tags: , ,

Comments No Comments »

Smekkleysa SM / BadTaste SM is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!