Skáta þarf vart að kynna fyrir fjöldanum. Plata þeirra, “Ghost of the Bollocks to come” deildi 1. sæti árslista Reykjavik Grapevine fyrir 2007 með I Adapt plötunni “Chainlike Burden” og eru því vel að því komnir að spila á sumarhátíð sama tímarits. Tónlist þeirra er með því líflegra sem sjá má á sviði og sjá má fólk með galopna munna, furðu lostið þegar þeir framkalla súrann en stórskemmtilegann bræðing rokks eins og það hefur aldrei áður verið framreitt. Skátar leggja nú drög að þremur sjötommu og stafrænum smáskífum sem munu líta dagsins ljós á árinu.
kimono er sennilega elst þeirra sveita sem kemur fram á tónleikunum, tæpra átta ára og hafa skilið eftir sig þrjár plötur (Mineur Aggressif 2003, Arctic Death Ship 2005 og Curver+kimono 2007). Sveitin hefur lítið á sér bera undanfarin misseri en þessir tónleikar marka breytingu þar á. kimono hafa setið sveittir við lagasmíðar og upptökur og hafa lofað því að tónleikaprógrammið í heild sinni verið samsett nýjum lögum. Því verður ekki lengi að bíða að fjórða skífa þeirra líti dagsins ljós. Heldur sveitin svo í víking til Belgíu nokkrum dögum eftir tónleikana þar sem tekinn verður mini-tour fernra tónleika.
Swords of Chaos er hópur fólks sem strokið hafa hljóðfærunum sínum saman frá því veturinn 2006. Hópurinn hefur áður komið fram í frumstæðara einstaklings formi í hljómsveitum á borð við Somniferum, The Ministry of Foreign Affairs, Big Kahuna, Gone Postal og Klive, s.s. allt frá síðrokki til svarta málms. Fullir af eðlisfræðilegum áhrifum um endalok heimsins, mikla hvell og hugsanlega vitneskju um alheim útbúin aðeins úr andefnum sjálfs síns koma Swords of Chaos fullir sjálfstrausts sem ferskur blær inn í tónlistargrýtu landsins. En þar sem framtíðin er glundroði og allt fyrir handan hana er frelsið sjálft spilar hljómsveitin blöndu af hávaðarokki í bland við harðkjarna og svarta málms áhrif, í anda hljómsveita eins og Fugazi, The Fucking Champs, Defeated Sanity, Death og Immolation. Framtíð framtíðarinnar er björt. Dómsdagurinn er í höndum Swords of Chaos.
DJ Bobby Breiðholt er einstaklega skemmtilegur DJ og Bloggari:
http://breidholt.blogspot.com/
http://www.balladofbob.blogspot.com/
Á dagskránni hans er m.a. soft rock, indie, italo disco, leftfield 80’s og fleira geggjað shit!
Við vonum að sem flestir mæti og fagni sumrinu með rjóma íslenskrar tónlistar síðari daga og fyrri.
Hlekkir:
The Reykjavik Grapevine
Skátar
kimono
Seabear
Swords Of Chaos
Organ, Hafnarstræti 1-3 (bakhús)
Miðvikudaginn 23. apríl (Síðasta Vetrardag)
Frá 22:00 - 05:00
1000 krónu aðgangseyrir
20 ára aldurstakmark

Entries (RSS)