Posts Tagged “super mama djombo”

Smekkleysa gefur út breiðskífuna Ar Puro með Super Mama Djombo sem spila á Listahátíð 31. maí.  

Í nóvember 2007 gerðist sá óvenjulegi atburður að afrísk hljómsveit ferðaðist frá hitabeltinu til Íslands, lands íss og elda, í myrkasta skammdeginu til að taka upp hljómplötu. Hljómsveitin heitir Super Mama Djombo og kemur hún nú fram á Listahátíð í Reykjavík til að kynna nýja tónlist sína, en það er í fyrsta sinn sem hún er flutt utan Gíneu-Bissá, heimalands hljómsveitarinnar í Vestur-Afríku. Platan var tekin upp í hljóðveri Sigur Rósar og er.

Saga hljómsveitarinnar Super Mama Djombo er samofin sögu lýðveldisins Gíneu-Bissá. Hljómsveitin var stofnuð árið 1972 af nokkrum táningspiltum, tveimur árum áður en landið fékk fullt sjálfstæði frá Portúgal. Að fengnu sjálfstæði máttu menn loks óáreittir syngja dægurlög á kreól, en það tungumál tengir saman í eitt málsvæði á um annan tug þjóðernishópa sem búa í landinu. Með Super Mama Djombo steig fram ung kynslóð tónlistarmanna sem sameinaði í söng og hljómum vonir nýfrjálsrar þjóðar um bjarta framtíð. Hin sérstaka blanda af kreól og hefðbundnum gíneönskum hljómum gengur undir nafninu gumbé og meðlimir Super Mama Djombo voru meistarar í túlkun hennar. Þeir ferðuðust til annarra landa í Afríku, Evrópu og víðar og voru meðal áhrifamestu hljómsveita á sínu sviði á þessum tíma. Árið 1980 gerðu þeir einu hljómplötuupptökurnar sem til eru með upprunalegu hljómsveitinni. Á grunni þeirra hafa komið út alls fimm hljómplötur á vinýl, auk tveggja safnplatna á geisladiskum – og enn er mikið efni óútgefið. Hljómsveitin leystist upp árið 1986.

Síðan 1986 hafa einstakir meðlimir hljómsveitarinnar unnið að tónlist hver í sínu horni. Hljómsveitarstjórinn Atchutchi hefur gefið út tvær plötur undir nafninuOrchestra Super Mama Djombo. Söngkonan Dulce Neves og trommarinn Zé Manel hafa hvort um sig gefið út þrjár plötur í eigin nafni. Zé Manel er einnig höfundur tónlistarinnar í fyrstu afrísku óperunni Binte Were sem nú er að leggja upp í heimsreisu. Það er þó nú í fyrsta sinn sem hljómsveitin stígur á svið með nokkrum af sínum fyrri burðarásum til að töfra fram hljóm hinnar upprunalegu Super Mama Djombo til að gleðja heiminn með tónlist sinni og fjörugri sviðsframkomu.

Nafnið Mama Djombo á rætur í kvenkyns skurðgoði sem er eitt öflugasta átrúnaðargoðið í Gíneu-Bissá. Þangað leita fjölmargir af mismunandi þjóðernishópum lausnar á margvíslegum vandamálum sínum. Það er því ekki að undra að sveitin vitjaði skurðgoðsins Mama Djombo áður en lagt var af stað í upptökur á Íslandi og bað um liðsinni hennar í von um vel heppnað verkefni sem beið í fjarlægu og köldu landi. Hvort sem það er stuðningi Mama Djombo að þakka eða árangursríku samstarfi frábærra tónlistarmanna er þessi nýja tónlist Super Mama Djombo í gumbé anda fyrri mektardaga hljómsveitarinnar. Sem fyrr fara saman grípandi laglínur við ljóðræna texta, sterkur gítarleikur og margradda söngur sem er studdur leikandi léttum ásláttarhljóðfærum. Í ljóðunum segir frá þrautagöngu brostinna drauma, stríðsátaka og upplausnar. Um leið er tónlistin óður til landsins og hvatning til ungs fólks um að taka upp gunnfánann sem leiddi til sjálfstæðis Gíneu-Bissá undir leiðsögn þjóðfrelsishetjunnar Amílcar Cabral.

Á tónleikum sínum á Listahátíð kynnir Super Mama Djombo nýja tónlist sína á alþjóðlegum vettvangi í fyrsta sinn. Hljómsveitin mun auk þess rifja upp dillandi gumbé tóna frá fyrri tíð. Það er því óhætt að segja að það séu forréttindi okkar Íslendinga, búsettra á norðurhjara veraldar, að vera næstir á eftir Afríkubúum til að njóta Super Mama Djombo endurborinna í hitabeltisham á sviði. Mögnuð tónlist í flutningi meistara á sínu sviði – Super Mama Djombo er komin til að vera.

Super Mama Djombo skipa:

ADRIANO FERREIRA GOMES “ATCHUTCHI” – hljómsveitarstjóri og höfundur laga
CESÁRIO HOPFFER “MIGUELINHO” - saxófón og gítar
ZÉ MANEL – trommur, tina, gítar og söngur
ARMANDO VAZ PEREIRA – congatrommur og bumbulum
FERNANDO PITCHETCHE – gítar
JAMIL CORREIA – gítar
VALDIR DELGADO - bassi
DULCE NEVES – söngur
BINHANQUINHE QUIMOR – söngur
KARYNA SILVA GOMES – söngur
TINO TRIMO – söngur
IVANILDO BARBOSA – hljómborð og söngur

Eingöngu selt í stæði

Miða má nálgast hér.
Tónleikarnir eru styrktir af Baugi.
 

Tags:

Comments 1 Comment »

Smekkleysa SM / BadTaste SM is Digg proof thanks to caching by WP Super Cache!